Útivistarnámskeið Umf. Þristar

Útivistarnámskeið Umf. Þristar

Þristur hefur undanfarið boðið börnum upp á útivistarnámskeið með það að markmiði að kynna fyrir þeim þá mörgu og skemmtilegu möguleika sem felast í útivist og töfrum náttúrunnar. Einnig er lagt upp með að byggja upp seiglu og jákvætt viðhorf gagnvart þeim áskorunum og ævintýrum sem leynast við hvert fótmál úti í náttúrunni. Á námskeiðunum er unnið með útivist í breiðum skilningi en útileikir, hjólreiðaferðir, útieldun, náttúruskoðun, fjallgöngur, rötun og listsköpun úr náttúrulegum efnivið eru á meðal þess sem boðið er uppá. Kennarar eru reynt útivistarfólk ásamt aðstoðarfólki. Námskeiðin hafa verið haldin á öllum tímum árs.

Með útivistarverkefni sínu leggur Ungmennafélagið Þristur sitt af mörkum til þess að sem flest börn og ungmenni finni tómstundir við sitt hæfi og alist upp sem sterkir einstaklingar.


Útiverur - Útivistarnámskeið fyrir unglinga í 7.-10. bekk 

Fer fram annan hvorn fimmtudag kl. 17-19:30 í september - desember, auk lengri ferða eina helgi í mánuði. 

Fjölbreytt útivist, náttúruskoðun, leikir, leiðtogafærni, óbyggðarfærni.

Útipúkar - Útivistarnámskeið fyrir börn í 3.-6. bekk 

Í september - maí og tveir hópar í boði: 

Á þriðjudögum kl. 17-18:30 eða miðvikudögum kl. 17:00-18:30 

Hjólreiðar, göngur, sleðafjör, gönguskíði, listsköpun, útieldun og almenn útivist. Hægt er að velja um staka mánuði eða allt tímabilið.

Útipíslir - útivistarnámskeið fyrir börn í 1.-2. bekk 

Í september - maí og tímarnir fara fram á þriðjudögum kl. 14:30-16:00 í Selskógi. 

Hjólreiðar, göngur, sleðafjör, gönguskíði, listsköpun, útieldun og almenn útivist. Hægt er að velja um staka mánuði eða allt tímabilið. 

 

Skráning á Abler undir Þristur 

Nánari upplýsingar

www.facebook.com/umfthristur