Minjasafn Austurlands
Á Minjasafni Austurlands eru fjölbreyttar sýningar þar sem saga, menning og mannlíf Austurlands er í forgrunni. Grunnsýningar safnsins eru tvær, annars vegar sýningin Hreindýrin á Austurlandi sem fjallar um þessi einkennisdýr Austurlands og hins vegar sýningin Sjálfbær eining þar sem fjallað er um sögu gamla sveitasamfélagsins á Austurlandi. Auk þess stendur safnið fyrir fjölbreyttum smærri sýningum og viðburðum. Lögð er áhersla á að taka vel á móti börnum.
Opnunartímar:
1. sept - 31. maí: Þriðjudaga til föstudaga 11:00-16:00
1. júní - 31. ágúst: Mánudaga til föstudaga 10:00-17:00. Laugardaga 11:00-17:00
Aðgangseyrir:
18 ára og eldri: 1800 kr
17 ára og yngri: Frítt
Eldri borgarar, öryrkjar, nemar: 1200 kr.
Hópar með 10 manns eða fleiri: 1200 kr. á mann.
Hljóðleiðsögn: 400 kr.
Nánari upplýsingar má finna á vef safnsins