Bókasafn Múlaþings, Djúpavogi

Bókasafn Múlaþings er staðsett á þremur stöðum í sveitarfélaginu; á Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði.

Bókasafn Múlaþings er í samstarfi við leik- og grunnskóla sveitarfélagsins, önnur söfn, félagasamtök og aðra sem óska þess að nýta aðstöðuna.

Bókasafn Múlaþings er menningar-, upplýsinga- og menntastofnun, rekið af sveitarfélaginu og skulu allir íbúar eiga kost á að njóta þjónustu þess.

Nútímabókasöfn eru samfélagsmiðjur og svokallað þriðja rými íbúa, það er hlutlaus staður sem hvorki er heimili, vinna né skóli. Þau eru athvarf fyrir notendur og eru einn af fáum stöðum þar sem fólk getur verið innandyra endurgjaldslaust.

Á vef Múlaþings má finna upplýsingar um opnunartíma

Vörðu 6, 765 Djúpivogur
Sími: 470 8708
Netföng: bokasafn.djupavogs@mulathing.is

Leita í safnkosti Bókasafns Múlaþings, Djúpavogi